Bréf til sveinka

20071215091346_0.jpgAlveg er ég komin með nóg af hvassviðrinu hér á suðvesturhorninu þessa dagana, kolbrjálað veður dag eftir dag. Katla fór ekkert í skólann í dag, hún átti að mæta í íþróttir í fyrsta tíma í morgun og hefði þá þurft að labba frá íþróttahúsinu yfir í skólann, þannig að við ákváðum að láta hana sleppa þeim, hún fékk að vera heima hjá vinkonu sinni sem býr í sama húsi og við og mamma hennar ætlaði svo að skutla þeim í skólann, en svo kom í ljós að það var ekki kennsla þannig að hún var hjá vinkonunni fram að hádegi en þá sótti ég hana og hún var með mér í vinnunni eftir hádegið. Hingað til hafði ekkert skemmst hjá okkur en serían á svölunum var rétt í þessu að gefa upp öndina, kannski ekki skrítið miðað það sem á undan er gengið. Annars er bara nóg að gera hjá okkur við jólaundirbúning og ýmislegt stúss….fór með stelpurnar í jólaklippinguna í dag, skutumst svo í Bónus og svo komu Orri og Bjarni Dagur í pössun til okkar, þannig að það var fjör hjá okkur hér í kvöld með 4 hressa krakka. Háttatíminn var frekar skondinn, Orri og Katla voru mjög fljót að sofna, en litlu dýrin Hekla og Bjarni Dagur voru ekki á því að fara að sofa, endaði með því að við færðum Bjarna Dag inn til okkar og létum hann sofna þar. Katla hafði smá áhyggjur af því að Þvörusleikir héldi kannski að þær systur væru eitthvað að reyna að svindla með því að setja 4 skó í gluggann þannig að henni fannst öruggara að skilja eftir bréf til hans með útskýringu hvernig stæði á þessum aukaskóm í glugganum:)

1 ummæli

  1. Inga Sigga sagði,

    desember 16, 2007 kl. 11:42 pm

    Hehe flott bréf. Hér vorum við að klára að baka mömmukökurnar og svo er það skemmtilega eftir…. að gera kremið og smyrja :) Þið megið alveg kíkja í kaffi og mömmukökur


Rita ummæli