Jólastúss

Kominn desember….3 vikur til jóla….alveg magnað hvað tíminn er fljótur að líða…nú er bara um að gera að njóta þessara daga sem eftir eru í botn, það ætla ég að gera.  Við erum langt komin með jólagjafirnar.  Ég, Inga Sigga og Lísa fórum í jólagjafaleiðangur í Smáralind á fimmtudaginn.  Ég náði að kaupa 3 jólagjafir þar, þar af 2 sem ég var ekki komin með neinar hugmyndir um hvað ég ætti að kaupa handa viðkomandi, þannig að ég var mjög ánægð með árangurinn:)  Við Inga Sigga höfðum það svo gott um kvöldið og horfðum á einn þátt í seríu 3 af Grey’s sem Inga Sigga fjárfesti í:)  Svo áb föstudagskvöldið var jólagleði í vinnunni hjá mér, það var mjög vel heppnað.  Inga Sigga gisti hjá okkur og stelpurnar fengu að vera heima með henni sem var algjör snilld.  Svo drifum við okkur á fætur í gærmorgun og fórum á opið hús hjá leikskólanum hennar Heklu, þar var piparkökubakstur og föndur í boði, mjög skemmtilegt.  Heklu fannst þetta nú hálfskrítið til að byrja með en skemmti sér svo mjög vel.  Eftir það færðum við okkur um set yfir í Hólabrekkuskóla en þar var einnig jólaföndur.  Katla bjó til mjög fallegan snjókarl og við máluðum nokkrar piparkökur.  Fórum svo aðeins heim og fengum okkur að borða og kíktum svo í nýju Hagkaupsbúðina í Holtagörðum, ætluðum nú eiginlega bara að rölta einn hring, sáum fyrir okkur að það yrði svo hrikalega löng biðröð á kössunum ef við færum eitthvað að versla.  En enduðum svo á því að finna 3 jólagjafir þannig að við skelltum okkur í röð, tók reyndar mun styttri tíma en við höfðum búist við.  Planið er svo að byrja að skreyta í dag.  Við erum búin að setja upp eina seríu í stofugluggann, og ég hélt í aðventukranshefðina mina og bjó til “aðventukrans á 5 mínútum” 3. árið í röð, heppnaðist mjög vel þó ég segi sjálf frá.  Garðheimar klikkuðu reyndar aðeins þetta árið, buðu ekki upp á kerti og skraut saman í pakka, en það reddaðist:)  Skelli inn mynd við tækifæri:)

5 Ummæli

  1. Inga Sigga sagði,

    desember 2, 2007 kl. 1:38 pm

    Heyrru ég einmitt gerði aðventukrans áðan á 5 mínútum. 4 rauð kerti, rauður jóladiskur, 10 metrar af rauðri perlufesti og 8 9 könglar úr Skalló ;) Takk fyrir mig

  2. Inga Rut sagði,

    desember 3, 2007 kl. 2:12 pm

    hey…hvernig gerir maður aðventukrans í fyrradag….þið 5 mínútna konur :)

  3. Inga Rut sagði,

    desember 3, 2007 kl. 2:13 pm

    hey hvernig gerir maður aðventukrans í fyrradag…þið 5 mínútna konur :)

  4. Rakel sagði,

    desember 3, 2007 kl. 9:32 pm

    Hæhæ,

    Hér má sjá myndir af krönsunum…á svo eftir að setja inn mynd af þessum nýjasta:) http://galdur.wordpress.com/2006/12/03/eg-for-i-a%c3%b0ventukranslei%c3%b0angur-i-gar%c3%b0heima-i-g%c3%a6rk/

  5. Inga Sigga sagði,

    desember 3, 2007 kl. 11:38 pm

    Inga Rut, keyptu bara disk, stóran svona jóladisk eða gylltan glæran og svo bara setja flott kerti og skraut, svona hent á og bara komið….. svo hægt að breyta og betrumbæta þegar tími gefst :)


Rita ummæli