Jæja, enn ein vinnuvikan að verða búin….ég fór á matreiðslunámskeiðið hjá himneskri hollustu á mánudagskvöldið. Það var algjört æði. Námskeiðið var haldið í Hagkaup í Smáralind, í eldhúsaðstöðu þar innaf. Hópurinn var nokkuð stór og það var tekið á móti okkur með hollustunasli og grænu vatni, nema hvað:) Græni liturinn á vatninu orsakaðist af grænu dufti sem er víst allra meina bót og ég ákvað á staðnum að fara nú að að sturta þessu í mig í tíma og ótíma….það er að segja alveg þangað til ég sá verðið á þessu eðaldufti…þá ákvað ég að geyma það til betri tíma…..hehe. En námskeiðið var virkilega skemmtilegt, við fengum þarna heilmikinn fróðleik um hinar ýmsu heilsuvörur, og svo var sýnikennsla, Solla og co bjuggu til baunabuff, pastasalat, grænmetissalat, speltbrauð, tvennskonar sósur og súkkulaðiköku. Að lokum fengum við svo að gæða okkur á öllum kræsingunum, sem brögðuðust hver annarri betri. Við Lísa komum pakksaddar út og fengum að auki með okkur sneið af himneskri súkkulaðiköku í nesti. Algjör snilld, stefni á að skella mér á framhaldssnámskeið við tækifæri. Á líka eftir að setja nokkrar uppskriftir inn á Matargatið. Ég fór svo í fyrsta Rope yoga tímann í gær….var pínu púsluspil að græja þetta alltsaman þar sem að súbbinn, eða prinsessubíllinn eins og Hekla kallar hann var á verkstæði. Þannig að Sæbi sótt mig í vinnuna og skutlaði mér í yogað, hann sótti svo stelpurnar og tók þær svo með sér á æfingu þannig að ég þurfti að redda mér eftir tímann úr listhúsinu í Valsheimilið, ætlaði fyrst að taka leigubíl en ákvað svo að rölta á næstu strætóstoppistöð og endaði á því að skella mér í strætó. Ég var mjög ánægð með þennan fyrsta yoga tíma, held að þetta sé eitthvað sem að hentar mér mjög vel, og magavöðvarnir mínir eru vaknaðir eftir langan dvala:) Hlakka til að fara aftur á morgun. Við fengum svo bílinn úr viðgerð í dag þannig að ég losna við strætóferð á morgun og Sæbi fær að hafa Knút sinn í friði:)

