![]()
![]()
![]()
Jæja, löngu kominn tími á nýtt blogg….veit ekki hvar ég á að byrja…er að horfa á Opruh með öðru auganu, áhugaverður þáttur um hamingjuna. Var einmitt verið að sýna innskot um hláturjóga, hef einu sinni prófað það, væri alveg til í að stunda það reglulega, virkilega skemmtilegt. Annars er bara allt ágætt að frétta af okkur fjölskyldunni. Lífið komið í rútínu eftir sumarið og nóg að gera hjá okkur öllum. Ég og stelpurnar ásamt Lísu skelltum okkur norður um síðustu helgi í afmælisveislu hjá mömmu. Það var virkilega skemmtilegt. Ekki oft sem að öll fjölskyldan (eða næstum öll) er saman komin. Skelli hér inn nokkrum myndum. Næsta vika verður svo spennandi hjá mér…eða ég vona það að minnsta kosti:) Er að fara á matreiðslunámskeið hjá himneskri hollustu á mánudagskvöldið, hlakka mikið til:) Svo er ég líka að byrja á 8 vikna rope yoga námskeiði, verður gaman að prófa það:)
Loksins blogg
október 3, 2007 kl. 11:13 pm (Almennt)

