Já, við Inga Rut skelltum okkur í tvöfalt þrítugsafmæli hjá Stínu og Hafrúnu á Hólmavík..sem reyndar breyttist í Springfield þetta kvöld. Þema kvöldsins var semsagt Leiðarljós og dressin eftir því. Ferðalagið byrjaði á því að ég tók rútuna í Borgarnes á laugardagsmorguninn. Inga Sigga tók á móti mér í Hyrnunni og ég kíkti í heimsókn til hennar í nýju íbúðina, sem er alveg meiriháttar fín, enn og aftur til hamingju Inga mín:) Inga Rut kom svo fljótlega og við stoppuðum smástund áður en við lögðum í hann norður..tókum á okkur smá krók og stoppuðum á Laugarbakka hjá foreldrum hennar. Við vorum svo komnar til Hólmavíkur um hálffimmleytið og fórum þá að hjálpa Stínu að stússast aðeins fyrir veisluna. Kvöldið var svo bara mjög skemmtilegt í alla staði…..en daginn eftir hefði verið gott að hafa farið aðeins varlegar í bolluna….en við þurftum að leggja af stað um hádegið til þess að ég næði rútunni frá Borgarnesi sem fór rétt fyrir þrjú. Ekki alveg skemmtilegasta ferðalag sem ég hef upplifað…say no more. En ég var komin í bæinn um fjögur og rölti þá frá bsí niður í miðbæ, beint í 17. júni fjörið. Hitti Sæba og stelpurnar þar…þau voru þá þegar búin að eyða 2 tímum í bænum þannig að við rétt tókum smá hring…enda var ég með ferðatösku á öxlinni og skærbleikt naglalakk sem ég tók með mér frá Springfield:) Það var svo mjög ljúft að komast heim og eyða kvöldinu í rólegheitum.


