Hér var farið á fætur eldsnemma í morgun, enda spennan í algleymingi hjá Kötlu að fara að leita að páskaegginu sínu. Hún faldi eggin okkar Sæba í gærkvöldi og skrifaði svo niður nokkur verkefni sem við áttum að leysa áður en við máttum byrja að leita að eggjunum. Við földum egg stelpnanna þegar þær voru sofnaðar og útbjuggum nokkrar vísbendingar fyrir Kötlu sem við földum svo á ýmsum stöðum. Hún var nú orðin pínu óþolinmóð í restina, hehe, en fannst þetta mjög skemmtilegt. Við fengum nú bara mjög venjulega málshætti í ár….annað en oft áður:)
Rakel: Penninn er máttugri en sverðið
Sæbi: Að leyna fundi er að líkjast þjóf
Katla: Eigi fellur tré við fyrsta högg
Hekla: Oftast rénar reiðin í biðum
Óskum öllum gleðilegra páska!


Inga Sigga sagði,
apríl 8, 2007 kl. 10:18 pm
Hæ
Mér finnst málshátturinn þinn eiga mjög vel við þig!!!!
Inga Sigga sagði,
apríl 8, 2007 kl. 10:18 pm
sko þig Rakel hehehe
Rakel sagði,
apríl 9, 2007 kl. 10:14 am
Hehehe, takk:)