Meiri snjór og maður lifandi

Jæja löngu kominn tími á nýtt blogg:)  Hélt að ég yrði ekki eldri í morgun…í fyrsta lagi þá var allt orðið hvítt einu sinni enn þegar ég leit út um gluggann…gærdagurinn gaf svona smá von um að það væri að koma vor en nei…..snjór og læti í morgun.  Svo byrjaði gamanið þegar við lögðum af stað í vinnuna…ég veit ekki hvort að fólk hefur fyllst bjartsýni í gær og streymt á dekkjaverkstæðin eða hvað en allavega þá tók það okkur um það bil hálftíma að komast yfir í seljahverfið með Heklu til dagmömmunnar og svo sátum við heillengi föst í bílaröð í götunni hjá henni…og svona til að taka stuttu útgáfuna af þessu þá var ég rúman klukkutíma á leiðinni í vinnuna eða ca. 45 mín lengur en venjulega….bara gaman eða þannig. 

Ég sótti svo stelpurnar eftir vinnu, við skutumst aðeins heim og fengum okkur að borða og svona og ég skutlaði þeim í pössun til tengdó.  Ég brunaði hinsvegar niður í maður lifandi og skellti mér á örnámskeið í skapandi skrifum hjá Þorvaldi Þorsteinssyni.  Þetta var mjög skemmtilegt.  Þetta var svona smá tilraunastarfssemi hjá honum því að þetta var fyrsta örnámskeiðið sem hann hefur verið með.  En mér fannst hann nú bara komast yfir heilmikið á þessum eina og hálfa tíma sem námskeiðið var.  Kjarni námskeiðsins var sá að vera ekki að miða sig of mikið við verk annarra og ekki að hengja sig í bókmenntafræðilegum reglum…heldur bara láta vaða og skrifa.  Skrifa um það sem þér þykir skemmtilegt, það sem vekur áhuga þinn.  Við fengum svo smá verkefni….fengum uppgefin nokkur orð og áttum svo að skrifa ævintýri á 10 mínútum.  Þetta voru svona klassísk orð sem koma fyrir í ævintýrum eins og kastali, prinsessa, dreki….og maður settist bara niður og skrifaði…reyndist alveg ótrúlega auðvelt og gaman að heyra hvað það urðu til ólík ævintýri.  Aldrei að vita nema maður drífi sig á “alvöru” námskeið hjá honum einhvern daginn. 

Annars er bara allt gott að frétta hjá okkur….allir hressir….Sæbi á kafi í körfunni…meistaraflokkurinn kominn í úrslit í 1. deildinni, og það kom í ljós í kvöld að þeir mæta þar Stjörnunni…fyrsti leikur á laugardaginn.  Kannski maður sýni smá lit og skelli sér…hef nú ekki verið dugleg að mæta á leiki hjá honum í vetur.  En þetta er spennandi…allt að gerast. 

Ég var líka að skella nýrri uppskrift inn á matargatið…allir að kíkja:)

1 ummæli

  1. Inga Rut sagði,

    mars 28, 2007 kl. 6:04 pm

    OMG….ég hefði orðið brjáluð. Ein í vinnunni hjá mér gisti á skaganum í fyrrinótt og fór af stað í bæinn um hálf átta (átti tíma hjá lækni hálf níu) og taldi sig hafa nógan tíma…en þau voru í rúman klukkutíma í gegnum mosó og niður í bæ…..!!!! Sú sem átti tímann á undan henni var ekki komin kl 9 þegar hún mætti.

    Endilega skelltu þér á alvöru námskeið og haltu svo námskeið fyrir okkur hinar :)

    Inga Rut


Rita ummæli