Í morgun var hringt í mig frá leikskólanum vegna þ…

Í morgun var hringt í mig frá leikskólanum vegna þess að Katla kvartaði yfir tannpínu:( Ég og leikskólakennarinn ákváðum að bíða aðeins og sjá til, en svo var hringt í mig aftur vegna þess að hún hélt áfram að kvarta og bar sig frekar illa. Ég hringdi á stofuna þar sem tannlæknirinn hennar er til þess að freista þess að fá tíma fyrir hana, en því miður var tannlæknirinn hennar í fríi, en ég fékk tíma hjá öðrum tannlækni á sömu stofu. Það kom í ljós að tönn sem hafði verið sett bráðabirgðafylling í var ekki í góðum málum. Það þurfti að gera við nokkrar tennur í Kötlu fyrir nokkrum mánuðum síðan og var það ekkert mál fyrir hana, hún stóð sig algjörlega eins og hetja, alveg ótrúlegt hvað hún var dugleg og var alltaf til í að fara aftur, hoppaði inn á stofuna, þvílíkt glöð. En í dag var þetta virkilega erfitt, hún grét og leið greinilega mjög illa og ég var næstum því farin að gráta með henni:( Ég veit ekki alveg af hverju þetta gekk svona miklu verr núna, kannski af því að hún þekkti ekki tannlækninn, og hann notaði aðrar aðferðir en hinn. Mér fannst þessi líka einhvern vegin ekki ná nógu vel til hennar þó svo að hún væri mjög indæl. En allavega þá tók þetta verulega á og ég var farin að hugsa að nú væri hún orðin hvekkt og fengist ekki til að fara aftur til tannlæknis. En nei, hún er ótrúleg þessi stelpa, um leið og þetta var búið þá var hún orðin kát og glöð aftur og var eins og ekkert hefði í skorist. Þegar ég spurði svo aðeins þegar frá leið hvernig hefði verið hjá tannlækninum þá sagði hún “gaman”, algjör hetja:) Hún þarf svo að fara aftur á morgun, það var sett eitthvað efni í tönnina og svo bráðabirgðafylling yfir, þarf að fara á morgun til þess að taka þetta úr og setja almennilega fyllingu. Svo þurfum við greinilega að fara að herða okkur í tannhirðunni, við höfum nú reynt að passa vel upp á tennurnar hennar, burstum alltaf, en það er greinilega ekki nóg, spurning um að fara að nota tannþráð líka og kannski flúortöflur, höfum ekki verið með þær handa henni. Svo kom hjúkkan til mín í morgun til þess að kíkja á Heklu Sif, það gengur allt vel, hún er núna orðin 5 kg, þyngist vel. Naflinn hennar er ekki alveg gróinn ennþá, þannig að ég fór með hana niður á heilsugæslu í dag til þess að láta brenna fyrir. Ég man að það þurfti líka að gera þetta við Kötlu á sínum tíma. Svo skruppum við mæðgurnar allar þrjár saman í nettó, fórum svo heim í smástund og svo með Kötlu á körfuboltaæfingu. Þannig að það var nóg að gera hjá okkur í dag, þvílíkt flakk á okkur. En þetta gekk vel, og það var mjög ljúft svo loksins þegar við komumst heim.